once up on a time...
já langt síðan síðast..... ég hef lítið gert annað en að vinna á hvammi uppá síðkastið en það er rosa fín vinna með fínu fólki
reyndar fæ ég næstum engin helgarfrí en það verður bara að hafa það og ég er að reyna mitt besta til að redda mér fríi um verslunarmannahelgina
um síðustu helgi fór ég í mývatnssveit á jónsmessunótt en þá safnast fullt af fólki saman útí náttúrunni umkringt hrauni og trjám með varðeld og gítar....viðhöfð var að sjálfsögðu hófleg drykkja
þar sem ég var vel klædd skemmti ég mér konunglega og endaði með því að tjalda ein kl 6 að morgni á einhverju tjaldsvæði sem ég rakst á
kl 10 nennti ég ekki að stikna lengur í tjaldinu þannig að við Heiða brunuðum heim og ég mætti á 16 1/2 tíma kvöld og næturvakt....sem telst ekki sniðugt.... setti inn nokkrar myndir en tók ekkert svakalega margar

eftir miðnætti á mánudagskvöldið brunaði ég inná akureyri að hitta Heiðu....á þriðjudaginn dröttuðumst við í sund kl 2 og héngum bara eins og okkur er lagið allan daginn en fórum og könnuðum kaffihúsastemmingu akureyringa eftir vænan rúnt en það var nú ekki margmenni á kaffi amour....í morgun svaf ég næstum yfir mig og hentist í snarhasti til húsavíkur í vinnuna en er svo aftur í fríi á morgun þannig að maður verður að finna sér eikkað að gera.....
farin að sofa.....
-Sóley-
ég er loksins búin með prófin og þýðir það að Fjölbrautaskólagöngu minni er lokið og ég ætla að sækja aftur um í VMA í haust...Reykjavík er ekki neinn dýrðarstaður þó það sé sosum fínt að skreppa þangað öðru hverju...
hittir hóru og þau verða massíft ástfangin eftir 2 mínútu kynni og myndu lifa happily ever after nema hvað kjellingin gefur upp öndina í enda myndarinnar og skilur grey gaurinn eftir aleinan og bitran og vælandi...sorglegt.....þessi týpíska ástarsaga þar sem fallega gellan velur frekar fallega fátæka gaurinn heldur en ljóta ríka náungan.... en það er ekki hægt að segja annað en að Nicole Kidman og Ewan McGregor geri þessa mynd að því sem hún er....snilld!